Einstaklingurinn og samfélagið

ChatGPT í yfirburðastöðu á Íslandi

Ný könnun Gallup fyrir Almannaróm sýnir í fyrsta sinn hvaða gervigreindartól landsmenn nota á íslensku. ChatGPT ber höfuð og herðar yfir önnur mállíkön meðal almennings en tæp 90% Íslendinga sem nota slík tól velja ChatGPT.

Í hvað nota Íslendingar gervigreind og máltækni á íslensku?

Vélþýðingar og spjallmenni eru komin í mjög víðtæka notkun meðal almennings. Mun færri nota tól eins og villuleiðréttingar og raddstýring á íslensku er afar lítið notuð – enda sú tækni þar sem íslensk virkni er komin styst í erlendum lausnum.

Vélþýðingar og spjallmenni orðin almenn en raddstýring nánast ónotuð

Vélþýðingar67,7
Gervigreindarspjallmenni60,7
Þjónustuspjallmenni fyrirtækja39,8
Villuleiðrétting24,4
Raddstýring8,8

Hlutfall svarenda sem nota gervigreind eða máltækni á íslensku við hvert verkefni

Heimild: Gallup fyrir Almannaróm, júní 2026. Grunnur: allir svarendur (n = 814).

Flestir í ChatGPT en fáir í Claude

Meðal þeirra sem nota gervigreindarspjallmenni á íslensku nota tæp níu af hverjum tíu ChatGPT. Þar á eftir kemur Gemini, sem 28% þeirra sem nota mállíkön nýta sér. Aðeins 12% þeirra sem nota slík líkön nota Claude.

Tæp níu af hverjum tíu nota ChatGPT

ChatGPT88,9
Google Gemini28,2
Microsoft Copilot22,3
Claude12,0
Grok3,4
Perplexity0,9
DeepSeek0,7
Le Chat (Mistral)0,5

Hvaða gervigreindarspjallmenni notar þú á íslensku? Fleiri en eitt svar leyft

Heimild: Gallup fyrir Almannaróm, júní 2026. Grunnur: þeir sem nota gervigreindarspjallmenni á íslensku (n = 494). Hlutföllin leggjast ekki saman í hundrað.

Hvaða tól verða fyrir valinu?

Á flestum sviðum virðist eitt tól hafa náð mestri almennri notkun meðal íslenskra notenda. ChatGPT er efst bæði þegar kemur að notkun mállíkana og leit með gervigreind og nær allir sem nota vélþýðingar fyrir íslensku nota Google Translate. Villuleiðrétting sker sig reyndar úr; þar eru stóru mállíkönin og íslensku tólin Skrambi og Málfríður notuð í svipuðum mæli.

ChatGPT og Google Translate í forystu, íslensk tól sterk í villuleiðréttingu

Ráðandi tólÍslenskt tólAnnað

Spjallmenni

Grunnur: 494 sem nota spjallmenni61% svarenda
ChatGPT88,9
Google Gemini28,2
Microsoft Copilot22,3
Claude12,0

Vélþýðingar

Grunnur: 551 sem nota vélþýðingar68% svarenda
Google Translate95,5
Stór mállíkön33,3
Erlendur6,5
Microsoft Translator2,7

Leit og upplýsingaöflun

Grunnur: 278 sem nota leitartól34% svarenda
ChatGPT Search67,9
Google Gemini46,9
Microsoft Copilot28,1
Claude Web Search6,4

Villuleiðrétting

Grunnur: 199 sem nota villuleiðréttingu24% svarenda
Stór mállíkön46,1
Skrambi44,6
Málfríður29,6
Grammarly5,1

Súlurnar sýna hlutfall þeirra sem nota viðkomandi tegund tóla á íslensku, ekki allra svarenda.

Mjói borðinn sýnir hve stór hluti allra 814 svarenda er í grunninum. Fleiri en eitt svar leyft.

Heimild: Gallup fyrir Almannaróm, júní 2026. Hvert spjald miðast við þá sem nota viðkomandi tækni.

Sérstaka athygli vekur hve vel Google Translate stendur meðal almennra notenda þrátt fyrir að margfalt betri vélþýðingartól séu í boði fyrir íslensku í dag. Það sést vel í WMT (opnast í nýjum flipa), stærstu vélþýðingakeppni heims, þar sem atvinnuþýðendur meta árlega íslenskar þýðingar kerfanna.

Gemini efst og íslenska lausnin Erlendur næst í vélþýðingum á íslensku

Mannleg þýðing87,5
Gemini 2.5 Pro77,6
Erlendur (Miðeind)68,3
GPT-4.168,0
Shy-hunyuan-MT63,2
TowerPlus-9B57,4
Google Translate*24. sæti af 33, komst ekki í hóp þeirra 19 sem sérfræðingar mátu

* Netþýðingarvélar eru nafnlausar í WMT-skýrslunni. Almennt er talið að vélin ONLINE-G sé Google Translate. Hún raðaðist í 24. sæti af 33 í sjálfvirku forvali.

Mat atvinnuþýðenda á þýðingum úr ensku á íslensku, kvarði 0–100. Fimm efstu vélarnar

Heimild: WMT25, úr ensku á íslensku, mannlegt mat atvinnuþýðenda (ESA). Kocmi o.fl. 2025.

Árið 2025 mældist Gemini 2.5 Pro efst í vélþýðingarkeppninni og íslenska lausnin Erlendur frá Miðeind í öðru sæti (WMT25 (opnast í nýjum flipa)). Google Translate komst hins vegar ekki í hóp þeirra 19 kerfa sem sérfræðingarnir mátu sérstaklega; lenti í 24. sæti.

Í sérhæfðum prófum sem Árnastofnun smíðaði fyrir sömu keppni, á hugtökum úr EES-samningnum og íslensku íþróttamáli, var íslenska lausnin Erlendur áfram í fremstu röð, í öðru og þriðja sæti.

Þjónustuspjallið fer fram á íslensku

Þegar fólk notar þjónustuspjallmenni fyrirtækja og stofnana gerir það það nær eingöngu á íslensku. Gæði íslenskunnar í þessum lausnum skipta því miklu máli fyrir gæði þjónustunnar sem fyrirtækin veita.

Þjónustuspjallmenni eru notuð á íslensku, nánast aldrei á ensku

Nota þjónustuspjallmenni

Hlutfall allra svarenda

Á íslensku39,8
Á ensku2,9

Mest notuðu þjónustuspjallmennin, eftir sviðum

Hlutfall af 324 notendum á íslensku

Bankar75,6
Opinberar stofnanir67,4
Fjarskiptafélög59,0
Heimild: Gallup fyrir Almannaróm, júní 2026. Vinstri: allir svarendur (n = 814). Hægri: þeir sem nota þjónustuspjallmenni.

Fólki er ekki sama

Rúm 62% segja að það skipti sig miklu máli að geta notað tækni og gervigreind á íslensku. Hlutfallið hefur haldist stöðugt í þremur mælingum Almannaróms frá því um haustið 2025.

62% segja það skipta sig miklu máli að geta notað gervigreind á íslensku

Mjög miklu: 32,2% Frekar miklu: 29,9% Hvorki né: 18,9% Frekar litlu: 7,2% Mjög litlu: 11,9% 62%miklu máli
  • Mjög miklu32,2%
  • Frekar miklu29,9%
  • Hvorki né18,9%
  • Frekar litlu7,2%
  • Mjög litlu11,9%

Hversu miklu máli skiptir það þig að geta notað tækni og gervigreind á íslensku?

Heimild: Gallup fyrir Almannaróm, júní 2026. Grunnur: þeir sem tóku afstöðu (n = 767).

Aðferðafræði

Nánar um gögnin, úrtakið og aðferðirnar að baki mælingunum.

Aðferðafræði

Hér er gerð grein fyrir framkvæmd og aðferðafræði könnunar sem Gallup gerði fyrir Almannaróm í júní 2026.

Könnun Gallup

Atriði Lýsing
Framkvæmd Gallup fyrir Almannaróm
Tími 12.–24. júní 2026
Aðferð Netkönnun
Þýði Landsmenn 18 ára og eldri
Úrtak 1.993 manns af öllu landinu, valdir af handahófi úr Viðhorfahópi Gallup
Svarendur 814
Þátttökuhlutfall 40,8%

Spurningarnar

Spurt var um sex tegundir gervigreindartóla: spjallmenni, vélþýðingar, raddstýringu, þjónustuspjallmenni, villuleiðréttingu og leit og upplýsingaöflun. Hverri spurningu fylgdi stuttur formáli og listi yfir algeng tól af þeirri tegund. Svarendur merktu við hvort þeir notuðu hvert tól á íslensku, á ensku eða á báðum málum.

Vélþýðingaspurningin náði yfir „ýmiss konar gervigreind og þýðingarverkfæri“. Hún tekur því jafnt til hefðbundinna þýðingarvéla eins og Google Translate og stórra mállíkana sem eru notuð í þeim tilgangi að vélþýða texta.

Að auki var spurt hversu miklu máli það skipti fólk að geta notað tækni og/eða gervigreind á íslensku, á kvarðanum 1–5. Sú spurning hefur verið lögð fyrir þrisvar: í október–nóvember 2025, nóvember–desember 2025 og júní 2026.

Hvernig hlutföllin eru reiknuð

Hlutföllin eru reiknuð af tveimur ólíkum grunnum:

  • Notkun er hlutfall allra 814 svarenda. Dæmi: 67,7% nota vélþýðingar á íslensku.
  • Val á tólum er hlutfall þeirra sem nota viðkomandi tegund tóla á íslensku. Dæmi: 95,5% þeirra sem nota vélþýðingar nota Google Translate.

Fleiri en eitt svar var leyft, svo hlutföll fyrir einstök tól leggjast ekki saman í 100%. Tólin sem spurt var um voru fyrirfram skilgreind og notkun annarra tóla var ekki mæld.

Vigtun

Gögnin eru vigtuð eftir kyni, aldri og búsetu svo að svarendahópurinn endurspegli þýðið. Ungt fólk var hlutfallslega fátt meðal svarenda: 18–29 ára voru 6,4% svarenda fyrir vigtun en 19,1% eftir vigtun. Svör þeirra vega því þyngra í niðurstöðunum.

Vikmörk

Vikmörk eru reiknuð með 95% vissu. Þau eru þröng þar sem hópar eru stórir en víðari þar sem þeir eru minni.

Niðurstaða Grunnur (n) Hlutfall Vikmörk
ChatGPT meðal notenda spjallmenna 494 88,9% ±2,8
Google Translate meðal notenda vélþýðinga 551 95,5% ±1,7
Skrambi meðal notenda villuleiðréttingar 199 44,6% ±6,9
Skiptir miklu máli að geta notað tækni á íslensku 767 62,1% ±3,4

Hvað könnunin mælir ekki

Könnunin mælir hvaða tól fólk segist nota. Hún mælir ekki hversu oft þau eru notuð né hversu vel þau virka.

Heimild

Gallup fyrir Almannaróm (2026). Óbirt skýrsla.