Gervigreind í dómskerfinu
Gervigreind er þegar komin í nokkra notkun innan dómskerfisins, bæði erlendis og hér heima. Starfsfólk dómstóla notar gervigreindarlausnir daglega við heimildaleit og Dómstólasýslan hefur samþykkt fyrstu reglur íslenskra dómstóla um notkun hennar. Dæmi eru um að tilbúin dómafordæmi frá gervigreind hafi ratað inn í dómsal.
Í hnotskurn
- Starfsfólk dómstóla er þegar farið að nota gervigreind í sínum daglegu störfum, helst við leit að dómsúrlausnum og öðrum heimildum. Uppritanir úr dómsal með aðstoð tæknilausna gætu sparað gríðarlega vinnu.
- Dómstólasýslan samþykkti stefnu og reglur um notkun gervigreindar hjá dómstólum landsins þann 25. júní 2026. Reglurnar hafa ekki verið birtar opinberlega.
- Yfir tvö þúsund tilvik hafa komið upp á heimsvísu þar sem dómsúrlausnir tengjast að einhverju leyti tilbúnu efni úr gervigreind. Héraðsdómari segist vita um sambærileg tilvik á Íslandi, þar sem tilbúin dómafordæmi úr gervigreind hafa ratað inn í dómsal, sem hafa ekki orðið opinber.
Spurningin um hvernig dómstólar megi nýta sér gervigreind er eflaust áleitnari en í flestum öðrum tilfellum. Dómstólarnir eru ein af grunnstoðum samfélagsins og fá svið sem reiða sig eins mikið á traust almennings og allt réttarkerfið.
Gervigreind er nú þegar farin að umbylta störfum lögmanna og lögfræðinga eins og fjallað hefur verið um hér. Hér beinum við sjónum okkar að dómskerfinu; förum yfir hvernig notkun gervigreindar er háttað innan íslenskra dómstóla í dag, hvaða áhættur fylgja tækninni og hvernig unnt sé að nýta hana með sem bestum og traustustum hætti á svo viðkvæmu sviði.
Staðan á Íslandi
Til að forvitnast um notkun gervigreindar innan íslenska dómskerfisins í dag leituðum við til Odds Þorra Viðarssonar, dómara við Héraðsdóm Vestfjarða, sem hefur fjallað töluvert um gervigreind í samhengi dómstóla og mannlegrar ákvarðanatöku. Að hans sögn er orðið algengt að dómarar, aðstoðarmenn dómara og annað starfsfólk noti gervigreindarlausnir til að leita uppi eldri dómsúrlausnir og aðrar heimildir, en það séu þá aðallega íslenskar gervigreindarlausnir á borð við Fons Juris, Jónsbók, Lagavita og Fordæmi.
Honum er þó ekki kunnugt um að gervigreind sé notuð með beinum hætti við skráningu eða skjalavinnslu innan dómstólanna. Það sé að minnsta kosti ekki gert hjá Héraðsdómi Vestfjarða, þar sem hann starfar. Hann telur töluverð tækifæri felast í aukinni notkun tækninnar en innan afmarkaðs ramma, aðeins í ákveðin verkefni, rétt eins og aðrar tæknilausnir sem hafa sparað lögfræðingum og starfsfólki dómstóla gríðarlegan tíma í gegnum árin.
„Ég tel að nú þegar sé bæði raunhæft og gagnlegt að nota gervigreindarlausnir til heimildaleitar eins og áður segir, villuleitar, gerðar samantekta, þýðinga og annarra sambærilegra verkefna. Þá felast tækifæri í notkun gervigreindar við uppritanir, þ.e. vélritun upp úr upptökum úr dómsal. Slík lausn gæti sparað fjölmargar vinnustundir innan dómskerfisins á næstu árum. Við alla framangreinda notkun gervigreindartækni ber þó að hafa hliðsjón af takmörkum hennar,“ segir Oddur Þorri.
Fyrst og fremst hjálpartæki
En hvar liggja þau takmörk? Oddur hefur áður fært rök fyrir því að tæknilausnir eigi, eðli málsins samkvæmt, að nýta fyrst og fremst tæknilega1. Líta eigi á gervigreind eins og hverja aðra tölvutækni eða internetið, sem hefur nýst lögfræðingum og dómurum vel, sem nýtt hjálpartæki sem á að spara handtökin. Hér eigi tæknin þó aldrei að skerða eða koma í staðinn fyrir mannlega dómgreind og halda verði henni frá dómsvaldinu að því leyti.
„Meðferð dómsmála má ekki byggja á ferlum sem eru með einhverjum hætti sjálfvirkir. Forrit má því t.d. nota til að finna mögulegar réttarheimildir en dómari verður sjálfur að taka afstöðu til þess hverjar þeirra komi til greina við úrlausn málsins og hvaða vægi þær eigi þá að hafa við mótun niðurstöðu.“
Oddur Þorri Viðarssondómari við Héraðsdóm VestfjarðaHér verði að skýra hvar mörkin liggja og gervigreind ætti aldrei að nota við mannlega ákvarðanatöku, til að mynda lagasetningu og ritun dómsúrlausna, en þar telur Oddur of mikillar bjartsýni hafa gætt í umræðunni undanfarið um möguleika gervigreindar. Þá sé gjarnan vísað til þess að lög séu ekki ósvipuð forritunarkóða, þ.e. fyrirmæli um það sem á eða á ekki að gera, og því geti tölvuforrit nýst vel efnislega í störfum lögfræðinga. Þetta segir Oddur að feli í sér mikinn misskilning um eðli laga og lögfræði; lög séu samfélagslegar reglur, sem séu næmar fyrir túlkun og túlkunin eigi sér ávallt stað út frá mannlegum forskilningi.
Mállíkön geti sannarlega skilað frá sér afar sannfærandi texta sem virðist á yfirborðinu byggja á lagatúlkun. „Þegar nánar er að gáð hefur forritið hins vegar ekki túlkað lögin heldur hermt eftir eldri textum sem forritið hefur verið fóðrað á,“ segir Oddur Þorri og tekur dæmi um annars konar samfélagsreglur, kurteisisreglur, til skýringar:
„Tölvuforrit getur greint hvað mannfólk hefur ritað um ýmis konar hegðun sem hefur verið talin kurteisleg eða dónaleg, t.d. að ropa við matarborðið, og skilað sannfærandi texta um slíka niðurstöðu. Tölvuforritið sjálft skortir hins vegar grundvallareiginleika til þess að túlka hegðunina. Sama gildir um lög og lögfræði; tölvuforrit getur hermt eftir textum sem lýsa ályktunum um lögin en tölvuforritið verður ekki þar með þátttakandi í lagakerfinu. Þarna á milli er bil sem verður ekki brúað með þeirri tækni sem gervigreind byggir á í dag, þ.e. mállíkönum, og það verður heldur ekki brúað með því að slík líkön skili betri eða meira sannfærandi niðurstöðum. Lagakerfið byggir enn á þeirri hugmynd að mannleg dómgreind fari með verkefni á borð við þau að setja samfélaginu lög og skera úr um lagalegan ágreining.“
Oddur viðurkennir þó að oft verði mörkin milli forms og efnis ekki eins skýr og maður myndi óska sér.
Trúnaður, traust og eignarhald
Áður en dómstólar taka gervigreindarverkfæri í víðtækari notkun þarf að mati Odds að huga sérstaklega að þrennu:
Gagnaöryggi
Dómstólar vinna með einhverjar viðkvæmustu upplýsingar samfélagsins og miðað við þær lausnir sem nú standa til boða er ekki hægt að mæla með því að upplýsingum sem gæta ber trúnaðar um sé hlaðið upp í gervigreindarlausnir.
Traust
Þó að ekki sé unnið með viðkvæmar persónugreinanlegar upplýsingar gætu „samtöl“ dómara við gervigreind um hugsanlega niðurstöðu dómsmáls hæglega grafið undan trausti almennings til dómstóla ef þau rötuðu á netið. Hætta á slíkum lekum sé sannarlega fyrir hendi. Í sumar greindi BBC2 frá því að fjöldi samtala notenda við gervigreindarlíkanið Claude hefði birst í leitarniðurstöðum Google í gegnum deilihlekki.
Eignarhald og utanaðkomandi áhrif
Einkaaðilar standa að baki öllum þeim gervigreindarlausnum sem starfsfólki dómstóla bjóðast í dag og tæknilega séð er ekkert því til fyrirstöðu að þeir hafi efnisleg áhrif á afurðirnar sem lausnirnar skila. Af þeim sökum á Oddur erfitt með að sjá fyrir sér víðtæka notkun dómskerfisins á gervigreind nema dómstólarnir komi sér upp eigin lausn sem þeir hafa sjálfir stjórn á, að því marki sem það er mögulegt.
„Grunnurinn gæti sjálfsagt komið frá einkafyrirtæki en nánari útfærsla og þjálfun, hýsing gagna o.þ.h. þyrfti að mínu mati að vera á forræði dómstólanna.“
Oddur Þorri Viðarssondómari við Héraðsdóm VestfjarðaSjá einnig: Umfjöllun um fullveldisgervigreind
Tilbúin dómafordæmi
Í byrjun árs 2023 kom upp fyrsta stóra málið þar sem gervigreindarlíkan bjó til uppspunnin dómafordæmi sem höfðu veruleg áhrif á mál sem var rekið fyrir dómstólum í New York3. Lögmaður var þá að reka mál fyrir umbjóðanda sinn gegn flugfélaginu Avianca og hafði beðið gervigreindarlíkanið ChatGPT að finna fyrir sig dómafordæmi sem studdu mál hans, sem hann svo setti inn í greinargerð án þess að athuga þau neitt frekar. Dómari í málinu uppgötvaði svo að dómarnir sem þar var vísað í væru ekki til þegar hann reyndi að sannreyna heimildirnar. Líkanið hafði skáldað upp afar sannfærandi tilvik með tilbúnum málsnúmerum og tilvitnunum. Lögmaðurinn og stofa hans voru sektuð um 5.000 dali.
Málið vakti gríðarlega athygli á sínum tíma, enda það fyrsta sinnar tegundar. Lögfræðingurinn Damien Charlotin við HEC-viðskiptaháskólann heldur úti opnum gagnagrunni yfir dómsúrlausnir4 þar sem efni sem gervigreind hefur skáldað hefur komið við sögu og eru þau mál orðin fleiri en 2.000 í dag. Eins og Charlotin bendir sjálfur á er þetta aðeins fjöldi mála þar sem upp hefur komist um rugl í gervigreind; þau hljóti þó að vera talsvert fleiri þar sem enginn hefur tekið eftir því.
2.079
dómsúrlausnir um allan heim þar sem uppdiktað efni úr gervigreind hefur komið við sögu
Gagnagrunnur Damiens Charlotin, staðan 27. september 2026.
Þessi atvik hafa verið litin alvarlegum augum og hafa lögmenn sem gerast uppvísir að því að nýta gervigreind með þessum hætti og bera á borð uppdiktuð mál í málsgögnum jafnvel verið sviptir málflutningsréttindum tímabundið og hlotið sektir sem nema tugum þúsunda dala.
Oddur Þorri bendir á að hér sé um að ræða þróun sem dómstólarnir hafi enga stjórn á og að notkun gervigreindar breyti í raun engu um ábyrgð lögmanna á réttmæti þeirra upplýsinga sem þeir leggja fyrir dóm. Íslenskar reglur setji þegar skýran ramma um þetta en samkvæmt siðareglum lögmanna má lögmaður aldrei gefa dómstólum rangar eða villandi upplýsingar um staðreyndir eða lagaatriði gegn betri vitund og geta veruleg eða ítrekuð brot varðað niðurfellingu eða sviptingu lögmannsréttinda. Þá er einnig heimilt að ákveða réttarfarssekt á hendur aðila fyrir að hafa uppi vísvitandi rangar kröfur og staðhæfingar í einkamálum og á vettvangi sakamála má fyrir æðri dómi ákveða sekt á hendur ákæranda, verjanda eða réttargæslumanni fyrir vítaverða vanrækslu eða önnur glöp við meðferð máls.
„Allar þessar reglur ættu að letja lögmenn til þess að styðjast gagnrýnislaust við afurðir gervigreindar en sambærilegar reglur hafa vissulega dugað skammt í öðrum ríkjum. Ég hef sjálfur meiri áhyggjur af því að rangar eða villandi staðhæfingar úr smiðju gervigreindarforrits kunni að birtast í íslenskum dómsúrlausnum á næstu árum en slíkt hefur einnig gerst víða erlendis.“
Dómstólar setja sér reglur og viðmið
Víða um heim hefur verið brugðist við innreið nýrrar tækni með því að setja formlegar reglur og viðmið um notkun hennar í dómskerfinu. Þar má til dæmis nefna leiðbeiningar sem hafa verið gefnar út í Bretlandi fyrir dómara þar í landi, sem komu fyrst út í desember 2023 en voru síðast uppfærðar haustið 2025. Þar er rík áhersla lögð á að dómarar lesi frumgögn mála ávallt sjálfir, gangi úr skugga um öryggi þeirra verkfæra sem þeir nota, haldi sig við að starfa í vinnutölvum sínum en ekki á tækjum í einkaeigu og ræði svo við aðstoðarfólk sitt um hvernig það eigi og megi nota gervigreind í störfum sínum.
Í desember 2025 gaf UNESCO svo út fyrstu alþjóðlegu leiðbeiningarnar5 um notkun gervigreindar hjá dómstólum. Þær hverfast um fimmtán meginreglur, þar á meðal um gagnsæi, öryggi, rekjanleika og mannlega yfirsýn. Lykilatriði og meginstef í þessum reglum öllum er þá alltaf að gervigreind eigi ávallt að styðja við mannlega dómgreind, ekki að koma í stað hennar. Í könnun sem UNESCO framkvæmdi meðal starfsfólks dómstóla um allan heim kom í ljós að 44 prósent höfðu þegar notað einhvers konar gervigreindarverkfæri í störfum sínum en aðeins 9 prósent höfðu fengið þjálfun í notkun þeirra.
AukaefniMeginreglur UNESCO í fimmtán liðum
Leiðbeiningar UNESCO um notkun gervigreindar hjá dómstólum hverfast um fimmtán meginreglur sem gilda um allan líftíma kerfanna, frá þróun og innkaupum til daglegrar notkunar.
-
Vernd mannréttinda Protection of human rights
Mannréttindi og réttarríkið séu virt og varin á öllum líftíma kerfanna, með sérstakri áherslu á bann við mismunun, jafnræði, réttláta málsmeðferð og persónuvernd.
-
Meðalhóf Proportionality
Notkunin stefni að lögmætum og hóflegum markmiðum í því samhengi sem kerfið er notað í.
-
Raunhæfur ávinningur Feasibility of benefits
Fyrir innleiðingu sé metið hvort ávinningurinn sé raunverulegur og hvort stofnunin hafi burði til að ná honum.
-
Öryggi Safety
Kerfin forðist og fyrirbyggi skaða fyrir aðila máls, dómara, dómstólana, orðspor þeirra og almenning.
-
Upplýsingaöryggi Information security
Trúnaðarupplýsingar séu varðar, vörnum gegn netógnum sé haldið uppi og dómstólar haldi yfirráðum yfir eigin gögnum.
-
Nákvæmni og áreiðanleiki Accuracy and reliability
Kerfin skili réttum og gagnlegum niðurstöðum og virki stöðugt við ólíkar aðstæður.
-
Skýranleiki Explainability
Hægt sé að gera grein fyrir því hvernig kerfi kemst að niðurstöðu og ferlið sé skiljanlegt og rekjanlegt fyrir fólk.
-
Úttektarhæfni Auditability
Tryggt sé með stjórnsýslulegum, lagalegum og mannlegum ráðstöfunum að hægt sé að gera úttektir á kerfunum í notkun.
-
Gagnsæi og opin réttarvarsla Transparent and open justice
Upplýst sé tímanlega hvenær og hvernig gervigreind er notuð, hvernig kerfin voru þróuð og hver takmörk þeirra eru, einkum þegar réttindi fólks eru í húfi.
-
Meðvitund og upplýst notkun Awareness and informed use
Notendur þekki virkni, notkunarmöguleika, takmörk og áhættu kerfanna og fylgist með tækniþróun.
-
Ábyrgð Responsibility
Þeir sem þróa og nota gervigreind bera sjálfir ábyrgð á ákvörðunum og verkum sem studd eru af henni.
-
Ábyrgðarskylda og andmælaréttur Accountability and contestability
Gerð sé grein fyrir því hvers vegna kerfin voru tekin upp og hverju þau skila, og aðilar máls geti vefengt niðurstöður sem gervigreind hafði áhrif á.
-
Mannleg yfirsýn og ákvarðanataka Human oversight and decision-making
Dómarar framselji engan hluta af umboði sínu til gervigreindar og hún komi ekki í stað sjálfstæðs mats þeirra á staðreyndum, lögum og sönnunargögnum.
-
Mannmiðuð hönnun og þátttaka Human-centric and participatory design
Kerfin séu hönnuð til að styðja við og efla störf dómstóla, með virðingu fyrir mannlegri reisn og sjálfræði, og dómarar jafnt sem almenningur komi að mótun þeirra.
-
Fjölþætt samráð og stjórnun Multi-stakeholder governance and collaboration
Samráð sé haft við fjölbreytta hagaðila á öllum líftíma kerfanna, ekki síst þá hópa sem innleiðingin getur snert.
Heimild: UNESCO, Guidelines for the Use of AI Systems in Courts and Tribunals (opnast í nýjum flipa) (2025).
Nýjar reglur fyrir íslenska dómstóla
Á Íslandi hafa einnig verið settar reglur um notkun gervigreindar innan dómskerfisins. Dómstólasýslan, sjálfstæð stofnun sem fer með sameiginlega stjórnsýslu dómstólanna, skipaði árið 2025 starfshóp sem var falið að setja fram tillögu að stefnu um hlutverk gervigreindar hjá dómstólum og leiðbeinandi reglur um notkun hennar. Starfshópurinn skilaði tillögum sínum 15. desember 2025 og stjórn dómstólasýslunnar samþykkti stefnu og reglur um efnið á fundi sínum þann 25. júní 2026. Þær eru nú í kynningarferli innan dómstólanna og hafa ekki verið birtar opinberlega.
Þá skilgreinir gervigreindarreglugerð Evrópusambandsins, sem verður innleidd á Íslandi í gegnum EES-samninginn, öll gervigreindarkerfi sem ætlað er að aðstoða dómstóla við að rannsaka og túlka málsatvik og lög eða beita lögum á tiltekin álitaefni, sem áhættumikil kerfi með tilheyrandi kröfum um gæði, gagnsæi og mannlega yfirsýn. Hins vegar er ljóst að tækninni á eftir að fleygja fram og óhætt er að gera ráð fyrir að einhver vafamál muni koma upp þegar kemur að notkun hennar innan dómskerfisins.
„Það verður því viðvarandi viðfangsefni í framtíðinni að útfæra reglur um notkun gervigreindar hjá dómstólum sem og öðrum handhöfum ríkisvalds.“
Oddur Þorri Viðarssondómari við Héraðsdóm VestfjarðaHeimildaskrá
- Oddur Þorri Viðarsson. (2026, 15. janúar). Er draugur í vélinni? Hugleiðingar um aðkomu gervigreindar að mannlegri ákvarðanatöku. Úlfljótur. (opnast í nýjum flipa)
- Kali Hays. (2026, 28. júlí). Some people's chats with Claude AI found to be publicly available online. BBC News. (opnast í nýjum flipa)
- Regulayer. (2026, 4. ágúst). Mata v. Avianca: the first ChatGPT sanction, in the court's own words. (opnast í nýjum flipa)
- Charlotin, D. AI Hallucination Cases. Sótt 27. september 2026. (opnast í nýjum flipa)
- UNESCO. (2025, 4. desember). Guidelines for the Use of AI Systems in Courts and Tribunals. (opnast í nýjum flipa)
