Faglegt mat enn mesta virðið - Áhrif gervigreindar á störf lögfræðinga
Fáar atvinnugreinar fást eins mikið við texta og lögfræði. Yfirferð gagna, skjalagerð, álitsgerðir og samningaskrif eru á meðal helstu daglegu verkefna lögfræðinga. Svo vill til að þetta eru einmitt þau verkefni sem stór mállíkön ráða sífellt betur við og erlendis hefur á örfáum árum sprottið upp heill nýr geiri utan um gervigreindarlausnir fyrir lögfræðinga. Og það sama má segja hér heima; sprotafyrirtækjum hefur gengið vel að þróa séríslenskar lausnir sem snerta lögfræðigeirann með einhverjum hætti.
Þessar lausnir leysa í vaxandi mæli einfaldari verkefni lögfræðinga sem áður kröfðust jafnvel fjölda klukkustunda vinnu af þeirra hendi; fyrstu drög ýmiss konar skjala, samantektir umfangsmikilla gagna, yfirferð samninga og grunngreiningu álitaefna.
Umfang fjárfestinga í þessum lausnum segir okkur eitthvað um þær væntingar sem gera má til þeirra og þau áhrif sem þær kunna að hafa á lögfræðigeirann á komandi misserum. Í mars 2026 sótti sænska fyrirtækið Legora 550 milljónir Bandaríkjadala í fjármögnun á virðismati upp á um 5,6 milljarða dala1 og aðeins tveimur vikum síðar staðfesti bandarískur keppinautur þeirra, Harvey, 200 milljóna dala fjármögnun á 11 milljarða dala virðismati2. Samkvæmt greiningu fjárfestingafélagsins Bessemer Venture Partners náði Legora 100 milljóna dala árstekjum hraðar en nokkurt annað hugbúnaðarfyrirtæki með fyrirtækjalausnir í sögunni3.
Spurning er svo hvaða áhrif þessi nýja tækni kunni að hafa á dagleg störf lögfræðinga – eða er þegar farin að hafa.
Notkunin tvöfaldast milli ára
Í könnun bandaríska laga- og tæknifyrirtækisins 8am meðal yfir 1.300 lögfræðinga og annars starfsfólks í lögfræðiþjónustu, sem birt var í mars á þessu ári, sögðust 7 af hverjum 10 nota almenn gervigreindarverkfæri í starfi sínu4. Árið áður var hlutfallið 31 prósent; notkunin meira en tvöfaldaðist á einu ári og við getum væntanlega gert ráð fyrir að nú hálfu ári síðar sé hún orðin enn meiri. Á sama tíma sögðu 43 prósent að lögfræðistofan sem þeir störfuðu hjá hefði enga formlega gervigreindarstefnu og meira en helmingur svarenda sagðist ekki hafa fengið neina þjálfun í því hvernig þeir mættu nota þessi tól.
Hlutfall svarenda sem notar almenn gervigreindarverkfæri í starfi. Heimild: 8am, 2026 Legal Industry Report.
Sambærileg mynd er dregin upp í skýrslu hollenska félagsins Wolters Kluwer um þróun lögfræðigeirans, sem var gefin út fyrr á þessu ári.5 Könnun var gerð meðal 810 lögfræðinga á stofum og lögfræðideildum fyrirtækja í Bandaríkjunum, Kína og átta Evrópulöndum. Þar sögðust 92 prósent þeirra nota að minnsta kosti eitt gervigreindarverkfæri í daglegu starfi og 62 prósent töldu sig spara 6 til 20 prósent af vinnutíma sínum þannig í hverri viku.
Nýr veruleiki að skella á
Skýrslan heldur því fram að lögfræðigeirinn sé í miðjum umskiptum. Gervigreindin verði sífellt betri í að leysa einföld verkefni sem lögfræðingar rukkuðu áður hátt tímagjald fyrir, kröfur viðskiptavina séu að verða sífellt flóknari og flestar lögfræðistofur séu farnar að endurskoða allt verklag sitt; hvernig þær vinni og geti skapað sem mest virði fyrir viðskiptavini sína.
Allavega virðist alveg ljóst að lögfræðistofurnar sjálfar telji gervigreind munu skipta sköpum fyrir framtíð sína. Í lok maí tilkynnti6 Kirkland & Ellis, tekjuhæsta lögfræðistofa heims, að hún hygðist verja 500 milljónum Bandaríkjadala á næstu þremur til fjórum árum í að smíða eigið gervigreindarkerfi frá grunni. Utanaðkomandi tæknifyrirtæki koma að þróun lausnarinnar en mega ekki selja keppinautum Kirkland & Ellis neinar afurðir sem koma út úr verkefninu. Ferlið er hafið og er þegar búið að kortleggja nákvæmlega vinnubrögð og vinnulag um 250 lögfræðinga sem starfa á stofunni.
Hugmyndin er svo að þjálfa kerfið á þeim aðferðum sem spegla vinnubrögð og hefðir sjálfrar stofunnar sem hafa byggst upp í gegnum árin. Kirkland & Ellis trúir því að þannig muni stofan ná raunverulegu samkeppnisforskoti; slíkt forskot náist ekki ef allar stofur kaupa bara sömu gervigreindarlausnir af sömu birgjum.
Í umfjöllun félagsins Thomson Reuters Institute6 (eiganda fjölmiðilsins Reuters) um fjárfestinguna er bent á að þó að upphæð verkefnisins sé gríðarlega há, 500 milljónir dollara, og veki eðlilega athygli, sé hér í reynd um frekar varfærnislega fjárfestingu að ræða. Árleg útgjöld Kirkland & Ellis til verkefnisins nemi aðeins um einu prósenti af tekjum stofunnar, sem sé töluvert lægra hlutfall en er jafnan varið í þróunarstarf innan atvinnugreina á borð við hugbúnaðargeirann eða lyfjaiðnaðinn, svo dæmi séu tekin.
Íslensk stofa í erlent samstarf um gervigreind
Íslenskar stofur eru ekki undanskildar þessari þróun, enda virka helstu gervigreindartól vel á íslensku og íslenskt lagamál og þá hafa innlendar gervigreindarlausnir orðið til og náð góðum árangri.
Fæstar lögfræðistofur heims hafa þó bolmagn til að fara sömu leið og Kirkland & Ellis með þróun eigin kerfa, hvað þá íslenskar stofur. Hér eru þó möguleikar á samstarfi stofa um þróun slíkra tóla og hér á landi höfum við þegar séð vísi að slíku.
Í maí síðastliðnum fjárfesti sænska félagið AGRD Partners í BBA//Fjeldco, einni umsvifamestu lögmannsstofu landsins, en sú sala hefur verið sett í samhengi við þessa þróun og áhrif gervigreindar á störf lögfræðistofa. AGRD er að meirihluta í eigu norræna sjóðastýringarfélagsins Axcel og hefur síðustu ár byggt upp samstæðu lögfræðistofa, þar sem markmiðið er ekki síst að veita þeim sameiginlega og framsækna innviði á sviði stafrænna lausna og gervigreindar.
Með þessum breytingum hættir BBA//Fjeldco raunar að vera eiginleg lögmannsstofa og verður frekar lögfræðistofa sem sinnir lögfræðilegri ráðgjöf til fyrirtækja. Systurfélagið BBA Fjeldco Lögmenn hefur nú verið stofnað til hliðar við stofuna svo að enn sé hægt að sinna verkefnum sem krefjast lögmannsréttinda, þegar reka þarf mál fyrir dómstólum.
Í umfjöllun Viðskiptablaðsins um fjárfestinguna9 var haft eftir talsmanni BBA//Fjeldco, að stofan hefði viljað „snúa vörn í sókn“ áður en nýr veruleiki gervigreindarinnar skylli á.
Við heyrðum í Jóhanni Magnúsi Jóhannssyni, einum af eigendum BBA//Fjeldco, til að spyrja nánar út í þessa sýn og fá álit stofunnar á þróuninni sem er að verða innan geirans; hvernig gervigreind sé þegar farin að breyta störfum stofunnar, hvað það þýði fyrir BBA//Fjeldco að starfa innan AGRD og hvernig hann sjái fyrir sér þróun lögfræðistarfa á næstu árum.
Snúa vörn í sókn: Breytingar hjá BBA//Fjeldco
„Gervigreind er þegar farin að hafa töluverð áhrif á dagleg störf okkar og hefur gert okkur kleift að vinna hraðar og af meiri nákvæmni á ákveðnum sviðum. Grunnstoðir starfsins eru þó áfram fyrst og fremst reynsla, þekking og dómgreind lögfræðinga.
Framtíðarvirði gervigreindarinnar í okkar störfum mun fyrirsjáanlega taka mið af því hvernig gengur að gera hana að eðlilegum hluta af vinnuferlum okkar. Hún kemur tæplega nokkurn tíma í stað faglegs mats, en við reiknum með því að skynsamleg innleiðing muni efla vinnubrögð og auka afköst,“ segir Jóhann Magnús spurður hvernig gervigreind sé að breyta daglegum störfum og vinnubrögðum lögfræðinga í dag.
Ég rak augun í orðalag frá ykkur í viðtali við Viðskiptablaðið í vor um að þið hafið viljað „snúa vörn í sókn“ áður en nýr veruleiki gervigreindar skellur á. Hvernig lítur sá nýi veruleiki út frá þínum sjónarhóli? Hvaða breytingum eigum við von á í störfum lögmannsstofa og í lögfræðiþjónustu á næstu misserum?
„Þarna var vísað til þess að við vildum stíga þetta skref á meðan fyrirtækið stendur vel og gervigreindin er enn að ryðja sér til rúms, fremur en að bíða þar til breytingarnar væru orðnar að veruleika. Að okkar mati mun tækniþróunin fyrst og fremst breyta því hvernig lögfræðiþjónusta er veitt og verðlögð, með aukinni áherslu á skilvirkni og virði ráðgjafar, ef vel tekst til með innleiðingu hennar.
Það er bjartsýnt að spá fyrir um þróun næstu missera í ljósi þess hversu hröð þróunin hefur verið. Þótt við sjáum framtíðina ekki glögglega fyrir, þá teljum við að lögfræðistofur sem fjárfesta tímanlega í þekkingu og innviðum standi best að vígi til að mæta breytingunum sem fram undan eru.
Innan AGRD höfum við mótað sameiginlega sýn á þessi mál sem endurspeglar einmitt þá nálgun að breytingarnar eigi sér stað í skrefum og séu afleiðing markvissrar innleiðingar, fremur en þess að vera að elta nýjustu tæknilausnina á hverjum tíma. Í samstarfinu njótum við góðs af auknum slagkrafti alþjóðlegrar samvinnu og miðlægum innviðum sem við hefðum varla sjálf getað komið á.“
AGRD hefur sérhæft sig í stafrænum lausnum og gervigreind í lögfræði. Hvað hefur samstarfið þegar fært ykkur á því sviði og hvað sjáið þið fyrir ykkur að sækja þangað á næstu misserum?
„Samstarfið hefur þegar veitt okkur aðgang að þekkingu og styrk AGRD Partners á sviði stafrænna lausna og gervigreindar. Við bætumst þannig í hóp annarra framsækinna lögfræðistofa innan raða AGRD sem sinna þessum málum skipulega.
Fyrir okkur er þetta að vissu leyti það besta úr báðum heimum: við sameinum krafta, nýtum sameiginlegan vettvang og fáum inn þekkingu á sviðum sem við erum ekki sérfræðingar í, svo sem í tækni og gervigreind, en höldum um leið sjálfsmynd okkar og getu til að vaxa áfram á markaðnum.
Í AGRD samstarfinu höfum við meðal annars mótað sameiginlega stefnu um gögn og gervigreind sem miðar að því að aðildarfyrirtækin geti nýtt sér sameiginlega þekkingu og reynslu á þessu sviði með markvissari hætti. Á næstu misserum vonumst við til að sækja frekari þekkingu og reynslu af innleiðingu tæknilausna sem reynst hafa vel hjá öðrum stofum innan samstæðunnar,“ segir Jóhann Magnús.
Teljið þið að fleiri íslenskar stofur muni feta í fótspor ykkar og fylgja svipaðri leið, hvort sem er með fjárfestum eða öðru alþjóðlegu samstarfi, til að sækja aukinn styrk í tækni og gervigreind?
„Það kæmi mér ekki á óvart ef fleiri íslenskar stofur myndu skoða möguleika á aðkomu fjárfesta eða alþjóðlegt samstarf, enda er þróunin sú að fjárfestingar á lögfræðiþjónustumarkaði munu að öllum líkindum aukast, sérstaklega þar sem þegar er töluverð virkni á sambærilegum mörkuðum erlendis.
Vissulega er þetta ekki eina leiðin sem völ er á, og hver stofa þarf að meta hvað hentar hennar stefnu og aðstæðum best. Við teljum að fjölbreytt nálgun á þessa þróun sé eðlileg og heilbrigð fyrir markaðinn í heild.“
Hvert færist virðið?
Í hvernig verkefnum hefur gervigreind helst nýst ykkur fram að þessu og eru einhver svið eða verkefni þar sem þið hafið meðvitað haldið aftur af notkun hennar?
„Gervigreind hefur einkum nýst okkur í undirbúningsvinnu, svo sem við yfirferð umfangsmikilla gagna, samantektir skjala og greiningu álitaefna.
Við höfum farið varlega í notkun gervigreindar í verkefnum þar sem trúnaður, næmi gagna eða flókið lögfræðilegt mat krefst sérstakrar varúðar. Auk þess eru afmörkuð tilvik þar sem notkun hennar kemur ekki til greina, til dæmis þar sem samningsskilmálar banna hana, viðskiptavinir hafa óskað sérstaklega eftir því að hún sé ekki notuð, eða þar sem lög setja slíkri notkun skorður,“ segir Jóhann Magnús.
„Hún kemur tæplega nokkurn tíma í stað faglegs mats, en við reiknum með því að skynsamleg innleiðing muni efla vinnubrögð og auka afköst.“
Við veltum svo fyrir okkur hvaða áhrif það hafi þegar gervigreind er farin að stytta þann tíma sem tekur lögfræðinga að sinna þessum daglegu verkefnum sínum: hvert færist það virði sem lögfræðingar hafa upp á að bjóða? Sér BBA//Fjeldco fyrir sér að stofur selji í framtíðinni sífellt færri vinnustundir eða fer tíminn í annað, kannski vandaðri greiningu og meiri ráðgjöf til viðskiptavinarins?
Hvaða áhrif sjáið þið fyrir ykkur að þetta kunni að hafa á verðlagningu lögfræðiþjónustu?
„Það er rétt að tæknin er að breyta því hvernig virði lögfræðiþjónustu skapast. Við teljum að virðið muni áfram liggja í gæðum ráðgjafar, dómgreind lögfræðinga og tengslum við viðskiptavini fremur en í tímafrekri yfirferð gagna eða skjalagerð.
Þrátt fyrir hraða þróun gervigreindar að undanförnu geta lögfræðingar ekki sent neitt frá sér sem unnið er af gervigreind án þess að ganga fyrst úr skugga um að afraksturinn standist faglega skoðun. Slík yfirferð getur í sumum tilvikum tekið jafn langan tíma og að vinna efnið frá grunni, þótt það sé vitaskuld misjafnt.
Markmið okkar er ekki aðeins að viðhalda vexti heldur einnig að auka skilvirkni í þjónustu við viðskiptavini. Við vonumst til þess að betri nýting tækni og gervigreindar skili meiri afköstum, bættum gæðum og, til lengri tíma, hagkvæmari verðlagningu.
Af mörgum sökum er tímagjald, og hefur sögulega verið, ófullkominn mælikvarði á afköst lögfræðinga eða virði þjónustu. Það er of snemmt að fullyrða nákvæmlega hvernig verðlagningarlíkön munu þróast, en ljóst er að markaðurinn er að taka breytingum og við fylgjumst grannt með þeirri þróun í samstarfi við sérfræðinga í þeim efnum.“
Er eftirspurn viðskiptavina ykkar að breytast? Komast þeir ef til vill lengra án ykkar hjálpar og ráða þeir nú jafnvel sjálfir við einfaldari verkefni, sem komu áður inn á ykkar borð, með aðstoð gervigreindar?
„Að vissu leyti komast viðskiptavinir nú sjálfsagt lengra en áður án okkar hjálpar og við sjáum sífellt fleiri dæmi þess að verkefni sem rata til okkar hafa þegar farið í gegnum eins konar frumgreiningu innanhúss hjá viðskiptavininum.
Sumir viðskiptavinir eru nú í stakk búnir til að leysa einfaldari verkefni sjálfir með aðstoð tækni, en það hefur um leið aukið eftirspurn eftir sérhæfðari ráðgjöf og flóknari verkefnum þar sem þeirra eigin geta nær ekki utan um viðfangsefnið.
Við sjáum þetta í mörgum tilvikum fremur sem breytingu á eðli eftirspurnarinnar en sem samdrátt í henni. Að sama skapi er alltaf varasamt að stóla of mikið á gervigreindina; þegar upp er staðið þarf jafnan mat sérfræðings til að staðfesta að úrlausnin samræmist viðurkenndum aðferðum,“ segir Jóhann Magnús.
Áskorun fyrir unga lögfræðinga
Nokkuð hefur borið á áhyggjum af því hvaða áhrif gervigreind hafi á störf og starfsþjálfun yngri lögfræðinga sem áður sinntu mörgum af þeim verkefnum sem gervigreindarlausnir eru farnar að leysa í dag. Í grein frá Harvard Law School um málið er tekið dæmi af alþjóðlegri lögfræðistofu sem fækkaði nýlega starfsnemum sínum um helming, úr 1.000 í 5007.
Félagið Thomson Reuters (eigandi fjölmiðilsins Reuters) gaf nýlega út greiningu um framtíð starfa8. Í lögfræðihluta skýrslunnar var fjallað sérstaklega um þennan vanda en tæplega helmingur svarenda könnunar á lögmannsstofum hefur áhyggjur af áhrifum gervigreindar á þróun sjálfstæðrar hugsunar lögfræðinga og búast svarendur við að sá tími sem það tekur unga lögfræðinga að byggja upp trausta dómgreind hafi nú lengst um nærri tvö ár, vegna þeirra verkefna sem gervigreind er farin að taka af þeim.
Hvernig horfir þetta við BBA//Fjeldco?
„Þetta atriði er klárlega á meðal þeirra sem ofarlega eru á baugi hjá okkur. Þjálfun yngri lögfræðinga þarf að þróast samhliða tækninni og við leggjum áherslu á að gervigreind sé notuð til að styðja við starfsþróun, ekki til að draga úr tækifærum ungs fólks til að byggja upp fagþekkingu.
Þetta felur meðal annars í sér að tryggja að yngri lögfræðingar taki áfram virkan þátt í greiningarvinnu og fái tækifæri til að þroska dómgreind sína, jafnvel þótt tæknin annist hluta af grunnvinnunni. Auðvitað hvílir ábyrgðin líka á einstaklingunum sjálfum og við treystum því að lagadeildir háskólanna hjálpi nemendum að búa sig undir þau verkefni sem bíða þeirra á vinnumarkaði,“ segir Jóhann Magnús.
Hvaða hæfni telurðu að verði mikilvægust fyrir lögfræðinga næstu fimm árin?
„Ég tel að hæfni til að nýta tækni á ábyrgan og skilvirkan hátt, samhliða öflugri dómgreind og hæfni til flókinnar greiningar, verði áfram undirstaða árangursríkrar lögfræðiþjónustu. Samskiptahæfni, traust í garð viðskiptavina og hæfni til að setja tæknilegar lausnir í rétt lögfræðilegt samhengi munu skipta sköpum. Þeir sem ná að tvinna saman tæknilega getu og hefðbundna lögfræðilega dómgreind verða í bestri stöðu til að mæta þörfum viðskiptavina á næstu árum.“
Hvar sérðu íslenska lögfræðimarkaðinn fyrir þér eftir fimm ár? Hvað verður líkt og hvað ólíkt því sem við þekkjum í dag? Er gjörbreyting á leiðinni sem viðskiptavinir munu finna skýrt fyrir?
„Viðskiptavinir munu líklega finna fyrir jákvæðum breytingum í formi skilvirkari þjónustu og aukinna gæða. Ég á von á að íslenski lögfræðimarkaðurinn verði áfram byggður á sömu grunngildum og í dag, en að vinnubrögð og tæknigeta muni taka miklum breytingum í þá átt að aukinni skilvirkni og meiri afköstum sem stenst enn frekar samkeppni við það sem þekkist erlendis.
Á móti kemur að lögfræðileg viðfangsefni verða síst einfaldari og íslenskur lögfræðimarkaður er að ýmsu leyti að færast nær erlendum mörkuðum í samanburði á flækjustigi, meðal annars vegna meira íþyngjandi regluverks. Aukin afkastageta ráðgjafa vegur upp á móti þeirri þróun, í þágu viðskiptavina, sem er kostur á minna markaðssvæði þar sem færri eiga kost á jafnmikilli sérhæfingu og í útlöndum.“
Heimildaskrá
- Bloomberg. (2026, 10. mars). Legal AI startup Legora raises $550 million for US expansion. (opnast í nýjum flipa)
- CNBC. (2026, 25. mars). Legal AI startup Harvey raises $200 million at $11 billion valuation. (opnast í nýjum flipa)
- Bessemer Venture Partners. (2026, apríl). Legora: The fastest enterprise business to reach $100M ARR. (opnast í nýjum flipa)
- Ambrogi, B. (2026, 5. mars). AI adoption among legal professionals has more than doubled in a year, new 8am report finds, but firms lag far behind individual practitioners. LawSites. (opnast í nýjum flipa)
- Wolters Kluwer: Future Ready Lawyer 2026 (opnast í nýjum flipa)
- Martin, T. (2026, 18. júní). The AI law professor: When a law firm's $500 million bet on AI is still playing it safe. Thomson Reuters Institute. (opnast í nýjum flipa)
- Viðskiptablaðið. (2026, 13. maí). Sækja kraft í norræna samstæðu. (opnast í nýjum flipa)
- Harvard Law School Center on the Legal Profession: How Lawyers Can Add Value in the Age of AI (opnast í nýjum flipa)
- Thomson Reuters: Future of Professionals 2026, lögfræðihluti (opnast í nýjum flipa)
