Hvað er gervigreindarfullveldi?
Inngangur
Á fáeinum árum er gervigreind orðin hluti af mikilvægum innviðum og daglegri starfsemi samfélagsins. Hún er notuð í stjórnsýslu, heilbrigðisþjónustu, menntun, atvinnulífi og upplýsingamiðlun. Með því verða ákvarðanir um hvaða tækni við notum, hver rekur hana og hvaða skilyrði gilda um hana að mikilvægu viðfangsefni.
Í þessu samhengi hefur hugtakið gervigreindarfullveldi fengið aukið vægi, einnig hér á landi. Það hefur komið fram í umfjöllun ráðherra og í aðgerðaáætlun stjórnvalda um gervigreind sem leggur áherslu á uppbyggingu innviða, þekkingar og færni á Íslandi.1 Í vor og sumar var jafnframt deilt um gervigreindarfullveldi í blaðagreinum um íslenskt mállíkan.2
Hugtakið tengist stafrænu fullveldi, sem nær yfir stafræna tækni og innviði í víðara samhengi. Hér er sjónum beint að gervigreind og því hvaða getu samfélag þarf til að geta mótað notkun hennar á eigin forsendum.
Þessari grein er ekki ætlað að taka fyrir stefnu stjórnvalda eða þau sjónarmið sem deilt var um í vor. Hún er sú fyrsta í flokki greina sem skoða hugtakið gervigreindarfullveldi frá ólíkum sjónarhornum og styrkja þannig umræðugrundvöll samfélagsins um þetta mikilvæga mál.
Greinin svarar fjórum spurningum: Hvað merkir gervigreindarfullveldi? Til hvers þurfum við það? Hvar liggja forsendurnar fyrir því? Og hvernig getum við tekið ákvarðanir sem taka mið af íslenskum aðstæðum?
Hvað merkir hugtakið?
Engin ein viðurkennd skilgreining á gervigreindarfullveldi er til. Hugtakið er meðal annars notað um getu til að þróa og reka tæknina, stjórn á gögnum, lagalegt vald til að setja henni reglur, stöðu tungumáls og menningar og möguleika innlendra fyrirtækja til að skapa verðmæti. Þetta eru skyld viðfangsefni, en þau kalla á ólíkar ákvarðanir.3
Í þessari grein er stuðst við eftirfarandi vinnuskilgreiningu:
Gervigreindarfullveldi er geta samfélags til að gera sér grein fyrir því á hvaða tækni það reiðir sig, setja mikilvægri tækni skilyrði og varðveita raunhæfa möguleika á að breyta um leið.
Samfélag getur nýtt erlenda tækni og alþjóðlegt samstarf með þessi markmið að leiðarljósi. Það þarf þá að geta metið tæknina, samið um notkun hennar og brugðist við ef aðstæður breytast. Sama samfélag getur haft þessa getu á sumum sviðum en skort hana á öðrum.
Hér er talað um samfélag vegna þess að ákvarðanirnar snerta fleiri en ríkið. Stofnanir þurfa þjónustu sem virkar og hægt er að endurskoða. Fyrirtæki þurfa að vera samkeppnishæf, hafa aðgang að tækni sem hentar ólíkum aðstæðum og raunhæfa valkosti. Almenningur þarf að geta treyst því að réttindi séu virt og að þjónusta sé aðgengileg.
Til hvers þurfum við gervigreindarfullveldi?
Tilgangurinn er að verja ákveðna samfélagslega hagsmuni og skapa svigrúm til að nýta tæknina. Hvaða skilyrði þurfa að gilda ræðst af því hvað er í húfi hverju sinni.
Lýðræði og réttindi
Þegar gervigreind er notuð við opinbera ákvarðanatöku þarf að vera ljóst hver ber ábyrgð, hvernig niðurstöður eru metnar og hvernig fólk getur fengið skýringar og endurskoðun. Meðferð persónuupplýsinga og aðgangur að þeim snerta jafnframt friðhelgi einstaklinga.
Lýðræðislegi þátturinn nær líka til opinberrar umræðu. Þegar gervigreind verður viðmót fyrir upplýsingar færist hluti þeirrar umræðu inn í kerfi sem samfélagið rekur mögulega ekki sjálft. Rammasamningur Evrópuráðsins um gervigreind, sem Ísland undirritaði í september 2024, tekur meðal annars til aðgangs að opinberri umræðu, þátttöku í henni og frelsis fólks til að mynda sér skoðanir.4
Samfélag og tungumál
Mikilvæg þjónusta þarf að geta haldið áfram þótt kerfi, tengingar eða þjónustuveitendur bregðist. Þar skiptir máli að vita hvaða starfsemi má stöðvast tímabundið og hvar varaleið þarf að vera til staðar. Í júní 2026 var greint frá prófunum Hljóðbókasafns Íslands sem gerðar höfðu verið um ári áður sem staðfestu að lánþegar gætu hlustað á bækur þótt tenging við útlönd rofnaði.5 Aðgengi að hljóðbókum varðar kannski ekki fullveldi þjóðar, en prófanir sem þessar gera samfellu þjónustunnar að áþreifanlegu viðfangsefni.
Staða íslensku í tæknir snertir aðgang fólks að þjónustu, menntun og menningarlegri þátttöku. Geta kerfa til að skilja og nota íslensku (opnast í nýjum flipa) skiptir því máli víðar en við þýðingar. Hún hefur líka þýðingu fyrir það hvernig fólk getur unnið, lært, aflað sér upplýsinga og tekið þátt í samfélaginu.
Verðmætasköpun og samkeppni
Íslensk gögn, þekking og vinna, ásamt aðgangi að reikniafli, geta nýst við þróun lausna og skapað verðmæti. Þá skiptir máli hver getur nýtt það sem verður til, með hvaða skilyrðum og hvort þekking byggist upp hjá þeim sem leggja sitt af mörkum.
Samkeppni tengist sömuleiðis möguleikanum á að velja. Ef gögn, verklag og sérþekking bindast einum þjónustuveitanda getur orðið dýrt og flókið að færa starfsemina annað. Raunhæfir valkostir skipta því máli bæði fyrir einstaka kaupendur og fyrir fyrirtæki sem vilja koma með nýjar lausnir á markað.
Gervigreindarfullveldi getur líka falist í því að tryggja aðgang að þeim lausnum sem henta best hverju sinni. Samstarf við erlend fyrirtæki eða önnur ríki getur verið leið til þess. Það getur til dæmis stuðlað að því að íslenska virki vel í erlendum kerfum og að íslensk verkefni hafi aðgang að öflugum reiknibúnaði og nýjustu líkönum.
Hvar liggja forsendurnar?
Til að geta tekið þessar ákvarðanir þarf samfélagið að búa yfir ákveðinni getu. Hún hvílir á þremur stoðum.
Gögn og málföng
Gögn eru grundvöllur þess að þróa og aðlaga gervigreindarkerfi. Fyrir íslensku eru málföng sérstaklega mikilvæg: textar, hljóðupptökur og önnur gögn sem nýtast við þróun máltækni. Þau eru einnig notuð til að prófa kerfin og meta gæði þeirra. Í áætluninni Íslenskan okkar, alls staðar er lögð áhersla á fjölbreytt málföng, gæðamat og sameiginlega innviði sem geta nýst við þróun ólíkra lausna.6
Magn gagna er aðeins einn þáttur. Gæði, fjölbreytni og lögmæt notkun skipta líka máli, ásamt því hver getur nýtt gögnin og til hvers. Við þróun fyrir íslensku þarf til dæmis að geta metið hvernig kerfi stendur sig og hvort gögn og matspróf nýtist áfram þegar skipt er um líkan eða þjónustuveitanda.
Færni og mannauður
Almenn þekking hjálpar fólki að skilja hvenær gervigreind er notuð, meta svör hennar og þekkja takmarkanir hennar. Starfsfólk og stjórnendur þurfa faglega getu til að ákveða hvar tæknin á við, meta áhrif hennar og fylgja notkuninni eftir. Sérhæfð tækni- og rannsóknarfærni gerir síðan kleift að þróa, aðlaga, prófa og reka kerfi.
Þetta krefst einnig þverfaglegrar þekkingar, meðal annars úr lögfræði, siðfræði og öðrum starfssviðum þar sem tæknin er notuð. Aðgerðaáætlun stjórnvalda um gervigreind leggur áherslu á fræðslu og færni, gagnalæsi og ábyrga notkun.1 Þekkingin þarf að nýtast við ákvarðanir um innkaup, samninga, eftirlit og endurskoðun kerfa.
Reiknigeta og innviðir
Þróun, aðlögun og rekstur gervigreindar krefst reikniafls. Gagnaver, raforka og tengingar eru hluti af þeim innviðum sem gera slíka starfsemi mögulega. Fyrir íslensk verkefni þarf að meta hvaða reiknigeta er nauðsynleg og hvernig hægt er að tryggja aðgang að henni, hvort sem það er innanlands eða í samstarfi við aðra.
Þvert á þessar stoðir þarf að greina á milli staðsetningar, aðgangs og stjórnar. Gagnaver á Íslandi veitir íslenskum verkefnum ekki sjálfkrafa aðgang að reikniaflinu. Aðgangur að þjónustu segir heldur ekki einn og sér hver ræður gögnum, breytingum á kerfinu eða skilmálum þess. Möguleikinn á að skipta ræðst síðan af því hvort hægt er að færa gögn, þekkingu og starfsemi yfir í aðra lausn.
Staðsetning gagna svarar heldur ekki öllum spurningum um lögsögu. Bandarísk yfirvöld geta til dæmis, að uppfylltum lagaskilyrðum, krafið tiltekna þjónustuveitendur sem falla undir bandaríska lögsögu um gögn sem þeir varðveita eða ráða yfir, þótt gögnin séu vistuð í öðru ríki.7 Við mat á þjónustu þarf því að skoða bæði hvar hún er rekin og hvaða lög og skilyrði gilda um hana.
Stoðir
Til að skilja hvar við stöndum þurfum við að meta hverja stoð út frá þeim þremur spurningum sem byggjast á vinnuskilgreiningunni. Veljið punkt á myndinni til að sjá dæmi um hvert og eitt.
Gögn og málföng
Vita á hvað við reiðum okkur
Þekkja uppruna og gæði gagnanna, hver ræður yfir þeim og hvaða réttindi fylgja notkun þeirra.
Færni og mannauður
Vita á hvað við reiðum okkur
Vita hvaða þekking er til staðar og hvaða verkefni reiða sig á fáa einstaklinga eða utanaðkomandi sérfræðinga.
Reiknigeta og innviðir
Vita á hvað við reiðum okkur
Vita hvaðan reiknigetan kemur, hver á og rekur innviðina og hvaða búnaður og hugbúnaður er nauðsynlegur.
Gögn og málföng
Setja skilyrði
Lögsaga, persónuvernd og heimildir til notkunar, t.d. við þjálfun líkana.
Færni og mannauður
Setja skilyrði
Kröfur um hæfni, skýra ábyrgð, skjalfestingu og miðlun þekkingar.
Reiknigeta og innviðir
Setja skilyrði
Skilyrði um aðgang, öryggi, rekstrarsamfellu og ábyrgð þjónustuveitanda.
Gögn og málföng
Geta skipt
Geta flutt og endurnýtt gögn og málföng hjá öðrum aðila, bæði samkvæmt leyfum og á aðgengilegu sniði.
Færni og mannauður
Geta skipt
Hafa færni sem nýtist í fleiri kerfum og næga þekkingu til að annað teymi eða þjónustuaðili geti tekið við.
Reiknigeta og innviðir
Geta skipt
Geta flutt vinnslu og kerfi á aðra innviði með viðráðanlegum tíma og kostnaði.
Hvernig tökum við ákvarðanir?
Getan til að framfylgja skilyrðum er mikilvægur hluti gervigreindarfullveldis. Samfélagið þarf að geta fylgst með því hvort þau séu uppfyllt og brugðist við ef út af bregður. Til þess þarf þekkingu, skýra ábyrgð og raunhæf úrræði.
Mat
Eins og fyrr segir má nota vinnuskilgreininguna til að meta einstök kerfi út frá þremur spurningum.
Matsspjald
Vitum við á hvað við reiðum okkur?
Hér þarf að þekkja kerfið, þjónustuveitandann, gögnin og tengslin við aðra innviði. Einnig þarf að vera ljóst hvers vegna þessi lausn var valin og hvaða hagsmunum henni er ætlað að þjóna.
Höfum við sett skilyrði?
Skilyrðin geta meðal annars varðað meðferð gagna, öryggi, gæði íslensku, ábyrgð, verð og samfellu þjónustu. Getan til að fylgja þeim eftir skiptir jafnframt máli: hver metur hvort þau séu uppfyllt og hvað gerist ef þau eru það ekki?
Getum við skipt?
Raunhæfur möguleiki á að breyta um leið krefst þess að gögn séu færanleg, önnur kerfi komi til greina og þekking sé til staðar til að framkvæma breytinguna. Kostnaður, tími og áhrif á þjónustuna þurfa að vera hluti af matinu.
Svarmöguleikar
- Liggur ekki fyrir
- Að hluta
- Liggur fyrir
Val
Við val á leið þarf að taka mið af því hvað er í húfi og hvað við getum gert sjálf. Það mat byggist á samfélagslegum hagsmunum og þeim stoðum sem eru til staðar eða hægt er að byggja upp.
Byggja eða stjórna sjálf
Þegar mikið er í húfi og eigin uppbygging eða stjórn er raunhæf getur sú leið átt við. Íslensk málföng og matspróf eru dæmi. Með því að varðveita gögn, sérþekkingu og getu til að meta íslensku í kerfum er hægt að halda áfram þróun þótt grunnlíkanið eða samstarfsaðilinn breytist. Þessi leið getur því falist í því að ráða mikilvægum þáttum verkefnisins og hvernig þeir nýtast.
Byggja með öðrum
Þegar mikilvæg verkefni krefjast meiri reiknigetu, fjármagns eða sérþekkingar en raunhæft er að byggja upp hér á landi getur samstarf verið viðeigandi leið. Íslensk verkefni geta til dæmis fengið aðgang að LUMI-ofurtölvunni í Finnlandi í gegnum íslenska aðgangspunktinn Glóð (opnast í nýjum flipa).8 Slíkt samstarf getur nýst við uppbyggingu reiknigetu og rannsókna. Þá þarf aðgangur, þátttaka í ákvörðunum og hvaða þekking og geta byggist upp hér á landi að vera skýr.
Kaupa með opnum möguleikum
Þegar takmarkaðir hagsmunir eru í húfi getur verið eðlilegt að kaupa þjónustu og tryggja að hægt sé að endurskoða valið. Þýðingartól fyrir innri vinnu með efni án viðkvæmra upplýsinga getur verið dæmi. Þar má meta gæði og kostnað og velja þjónustu með skilmálum og stöðlum sem leyfa aðra leið síðar. Mat á því hvað er í húfi þarf þó að miðast við verkefnið og gögnin sem eru notuð.
Leiðirnar geta farið saman. Í kerfi sem styður ákvarðanir um bætur eða er notað í heilbrigðisþjónustu getur stofnun keypt tæknina, tekið þátt í samstarfi um þróun og haldið sjálf utan um gögn, gæðamat og ákvarðanir. Mikilvægi þjónustunnar kallar þá á skýr skilyrði um réttindi, ábyrgð og samfellu, óháð því hvaðan tæknin kemur.
Tveir ásar
Verkfæri
Ólík verkfæri styðja við þá leið sem er valin, hvort sem við byggjum eða stjórnum sjálf, byggjum með öðrum eða kaupum þjónustu. Þau þarf að nýta bæði við mat og val á kerfum og meðan þau eru í notkun.
Vita og meta
Kortlagning, skráning og mat hjálpa til við að þekkja þá tækni sem starfsemin reiðir sig á og meta notkun hennar og áhrif.
Setja og framfylgja skilyrðum
Samningar, leyfi og innkaup geta skilgreint hvað má gera við gögn og hvaða þjónusta á að vera veitt. Lög, eftirlit og skýr ábyrgð móta rammann og eftirfylgnina. Þar þarf einnig að ákveða hvernig brugðist verður við frávikum.
Geta skipt
Staðlar og samvirkni, það er geta kerfa til að vinna saman og skiptast á gögnum, geta auðveldað breytingar. Færanleg gögn og skýrir skilmálar um lok þjónustu hjálpa jafnframt til við að halda öðrum leiðum opnum.
Lokaorð
Gervigreindarfullveldi felst í því að samfélagið geti tekið upplýstar ákvarðanir um tæknina sem það reiðir sig á, sett notkun hennar skilyrði og breytt um leið þegar þörf er á. Til þess þarf þekkingu á kerfunum, getu til að fylgja skilyrðum eftir og aðra kosti sem hægt er að nýta í raun.
Fyrir Ísland skiptir því máli hvaða þekking og geta byggjast upp, hver getur nýtt íslensk gögn og vinnu og hvaða valkostir haldast opnir til framtíðar. Eigin uppbygging, samstarf og kaup á þjónustu geta farið saman eftir viðfangsefnum. Gildi hverrar leiðar ræðst af því hvernig hún styður við þá samfélagslegu hagsmuni sem eru í húfi og gerir okkur kleift að endurskoða ákvarðanir þegar forsendur breytast.
Í næstu greinum verður kafað dýpra í viðfangsefni þessarar greinar, auk þess sem farið verður yfir stöðu Íslands og samanburð við önnur ríki.
Heimildaskrá
- Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið. Aðgerðaáætlun um gervigreind 2025–2027. Júlí 2025. (opnast í nýjum flipa)
- Logi Einarsson, „Sjálfstæðisbarátta nútímans“, Vísir, 25. mars 2026, https://www.visir.is/g/20262860449d/sjalf-staedis-bar-atta-nu-timans (opnast í nýjum flipa); Linda Heimisdóttir og Vilhjálmur Þorsteinsson, „Gervigreind og fullveldi“, Vísir, 8. apríl 2026, https://www.visir.is/g/20262866181d/gervi-greind-og-full-veldi (opnast í nýjum flipa); Jón Guðnason o.fl., „Íslenskt mállíkan – fullveldi eða útvistunarsamningur?“, Vísir, 13. apríl 2026, https://www.visir.is/g/20262868510d/is-lenskt-mallikan-full-veldi-eda-ut-vistunar-samningur- (opnast í nýjum flipa); Hafsteinn Einarsson, „Við þurfum ekki að kaupa gervigreindarfullveldið að utan“, Vísir, 22. júlí 2026, https://www.visir.is/g/20262912397d/vid-thurfum-ekki-ad-kaupa-gervigreindarfullveldid-ad-utan (opnast í nýjum flipa).
- Juan N. Pava, Caroline Meinhardt, Elena Cryst og James A. Landay. „AI Sovereignty’s Definitional Dilemma“. Stanford Institute for Human-Centered Artificial Intelligence, 17. febrúar 2026. (opnast í nýjum flipa)
- Evrópuráðið. Framework Convention on Artificial Intelligence and Human Rights, Democracy and the Rule of Law, https://rm.coe.int/1680afae3c (opnast í nýjum flipa), einkum 5. gr.; tilkynning um opnun samningsins til undirritunar og undirritun Íslands, 5. september 2024, https://www.coe.int/en/web/portal/-/council-of-europe-opens-first-ever-global-treaty-on-ai-for-signature (opnast í nýjum flipa).
- Alþingi. Þingskjal 1308, 549. mál á 157. löggjafarþingi: svar menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra um stafrænt fullveldi Íslands. Þar er meðal annars greint frá prófunum Hljóðbókasafnsins. (opnast í nýjum flipa)
- Menningar- og viðskiptaráðuneytið. Íslenskan okkar, alls staðar: Áætlun um íslenska máltækni. Mars 2024. (opnast í nýjum flipa)
- U.S. Department of Justice. The Purpose and Impact of the CLOUD Act: Frequently Asked Questions, einkum spurningar 23–25. (opnast í nýjum flipa)
- Glóð. Vefur Glóðar, https://glod.ai/ (opnast í nýjum flipa), og „Um Glóð“, https://glod.ai/um-glod (opnast í nýjum flipa), þar sem tengslin við LUMI og hlutverk Almannaróms koma fram.
