Umhverfis- og orkumál

Umhverfisáhrif gervigreindar

Í daglegri notkun birtist gervigreind flestum sem spjallgluggi en umhverfisáhrif sem henni tengjast verða hins vegar til í allri keðjunni: þegar líkön eru þjálfuð, þegar þau svara beiðnum, í rafmagninu sem knýr tölvurnar og auk þess í framleiðslu og stöðugri kælingu á vélbúnaði. Algeng spurning þeirra sem velta fyrir sér áhrifum tækninnar á umhverfið er þessi: „Hvað kostar ein fyrirspurn?“. Þetta er nytsamleg vangavelta en hún nær þó aðeins yfir hluta myndarinnar. Þessi grein gerir tilraun til að skýra hvaða auðlindir gervigreind nýtir, í hvaða magni og hvað það þýðir fyrir okkur á Íslandi.

Myndast hefur ákveðin andstaða gegn gervigreind víða um heiminn og sérstaklega í Bandaríkjunum þar sem gagnaverin rísa hvert á fætur öðru í dreifbýlum og við íbúðahverfi. 12 Fréttaveitur sýna fólk mótmæla uppbyggingu gagnavera sem eru á vegum m.a. stórfyrirtækja á borð við Amazon, Microsoft, Google og Meta leigja síðan út til gervigreindarfyrirtækja eins og OpenAI og Anthropic. 345

Mótmælin snúa m.a. að hávaðmengun, vatns- og orkunotkun gagnaveranna, áhrifum notkunarinnar á rafmagnsreikninga íbúanna auk lækkandi fasteignaverðs. Íbúar krefjast margir betri upplýsinga og vilja tækifæri til að hafa áhrif á ákvarðanir um framkvæmdir. 8 Á öðrum ársfjórðungi 2026 voru að minnsta kosti 45 gagnaveraverkefni í Bandaríkjunum að verðmæti um 68 milljarða dala, eða rúmlega átta billjóna íslenskra króna, stöðvuð vegna andstöðu íbúa samkvæmt samantekt Data Center Watch. 910 Samkvæmt könnun Gallup í Bandaríkjunum í mars 2026 mælist andstaða gegn gagnaverum nú meiri en andstaða gegn kjarnorkuverum. 8

Ungt fólk áhyggjufullt

Andstaðan er ekki aðeins bundin við þau sem búa nálægt gagnaverunum. Ungt fólk notar gervigreind meira en nokkur annar aldurshópur en hefur um leið mestar áhyggjur af henni; áhyggjur 18–29 ára Bandaríkjamanna af umhverfisáhrifum gervigreindar jukust úr 38% í 60% á einu ári, og rúmur þriðjungur nemenda segist hafa sleppt því að nota gervigreind af umhverfisástæðum. 1112 Sömu áhyggjur eru komnar fram hér heima, en í annarri mynd. Ungir umhverfissinnar tóku saman afstöðu sína til umhverfisáhrifa gervigreindar sérstaklega fyrir þessa umfjöllun, í bréfi sem Laura Sólveig Lefort Scheefer, forseti samtakanna, undirritar fyrir hönd stjórnar. Þau segja umræðuna í dag „of einfalda“ og að hana skorti „bæði gagnsæi, óháðar upplýsingar og sameiginlegt tungumál til að ræða raunveruleg áhrif þessarar þróunar“. 34

Hvaða auðlindir þarf gervigreind?

Þegar notandi í Reykjavík situr við tölvu eða síma og spyr spjallmenni spurningar  er beiðnin send í það gagnaver sem býður upp á lausa reiknigetu hverju sinni og hvorki OpenAI eða Anthropic gefa upp hvaða gagnaver afgreiddi beiðnina. Rafmagnið og vatnið sem fyrirspurnin þín notar eru því að öllum líkindum tekin úr bandarísku raforkukerfi og bandarísku vatnsbóli, og það er engin leið fyrir notandann að vita hvort það var vindorka í Iowa eða gas í Texas. 1617

Við getum þó að minnsta kosti reynt að átta okkur á því hvaða auðlindir eru nýttar í ferlinu, þótt við þekkjum ekki nákvæman uppruna. Til þess er gagnlegt að brjóta ferlið upp í nokkur skref: Þegar þú skrifar spurningu í spjallglugga og ýtir á enter fer lítill gagnapakki um ljósleiðara til gagnavers, oftast í öðru landi, þar sem þúsundir sérhæfðra reiknikubba, svokallaðra GPU-kubba, keyra líkanið sem á að svara. Kubbarnir vinna úr spurningunni orð fyrir orð, framleiða svarið og senda það til baka.

Allt þetta tekur örfáar sekúndur og á þeim stutta tíma eru þrjár auðlindir notaðar: rafmagn, vatn og vélbúnaður.

Rafmagn

Rafmagnið er stærsti liðurinn. Það knýr kubbana sjálfa, en líka allt í kringum þá: netbúnað, minni, kælikerfi og þær vélar sem standa tilbúnar til að taka við álagi þótt enginn sé að nota þær á því augnabliki. Google hefur sýnt að ef aðeins er tekið tillit til rafmagnsins sem fer í kubbana fæst tala sem er um það bil helmingi of lág; kælingin, vélarnar í bið og annar búnaður tvöfalda hana. 14

Vatn

Vatnið kemur að ferlinu á tveimur stöðum. Annars vegar í gagnaverinu sjálfu, þar sem algengt er að kæla búnaðinn með því að láta vatn gufa upp, líkt og sviti kælir líkama. Hins vegar, og þetta gleymist oft, í raforkuverinu sem framleiðir rafmagnið: kola-, gas- og kjarnorkuver nota gríðarlegt magn af vatni til kælingar. Sé horft á heildina er þetta seinna notkunartilvik, vatnið í rafmagnsframleiðslunni, yfirleitt stærri liðurinn en kælivatnið í gagnaverinu. 15

Vélbúnaður

Þriðji liðurinn er vélbúnaðurinn. Kubbarnir, netþjónarnir og byggingarnar eru framleidd úr málmum og sjaldgæfum efnum og endast í fáein ár. Þegar franska fyrirtækið Mistral lét gera fyrstu heildstæðu vinnsluferlisgreininguna á stóru mállíkani kom í ljós að framleiðsla vélbúnaðarins vó þungt í heildarumhverfisáhrifum þess, og nær öll hráefnanotkunin er þar. 13

Ungir umhverfissinna benda einmitt á þessa þrjá liði. Þau nefna að auki landnotkun, kolefnisspor, steinefni í tækjabúnaði, úrgang og endurvinnslu, og möguleg áhrif hávaða og lágtíðnihljóða á fólk og dýralíf. Þau vilja að slík áhrif séu rannsökuð og metin „áður en starfsemi er hafin eða stækkuð“. 34 Viðfangsefni þessarar greinar er það sem fylgir notkuninni sjálfri: rafmagnið, vatnið og vélbúnaðurinn. Landið, hávaðinn og áhrif á nærsamfélagið koma við sögu þegar við skoðum gagnaverin sjálf í öðrum kafla sem verður birtur seinna.

Hvað kostar hver fyrirspurn?

Talan sem oft er fleygt fram er að ein spurning til ChatGPT kosti hálfan lítra af vatni. Fullyrðingin er röng og á rætur í rannsókn frá 2023 sem áætlaði að GPT-3, úrelt líkan í dag, notaði hálfan lítra á 10 til 50 svör. 1819

Google birti í ágúst 2025 mælingu á almennri fyrirspurn til Gemini en samkvæmt henni notaði fyrirspurnin rafmagn á við að horfa á sjónvarp í níu sekúndur og vatn á við fimm dropa. 14 Sam Altman hjá OpenAI gaf upp svipaðar tölur fyrir ChatGPT, um það bil einn fimmtánda úr teskeið af vatni og rafmagn á við ofn í rúma sekúndu, þótt OpenAI hafi ekki birt neina aðferðafræði á bak við þær. 20 Vatnstala Google nær aðeins til kælivatns í gagnaverinu, ekki vatnsnotkunar við raforkuframleiðslu eða framleiðslu vélbúnaðar. Hún lýsir því ekki heildarvatnsspori fyrirspurnarinnar en setur hana kannski í samhengi við aðra orkunotkun neytenda. 14

Ungir umhverfissinnar vara sérstaklega við því að umræðan sé einfölduð niður í „notarðu ekki tölvu?“ eða „AI er bara hugbúnaður“ á meðan raunveruleg umhverfisáhrif verða til í innviðum, orkunotkun, vatnsnotkun og hráefnisvinnslu, og segja að það þurfi að vera hægt að ræða þessa hluti „án þess að annaðhvort gera lítið úr áhrifunum eða halda fram ósönnuðum fullyrðingum“. 34 Samanburðurinn hér á eftir er ekki hugsaður til að afgreiða áhyggjurnar heldur til að gefa einni fyrirspurn stærð sem hægt er að sjá fyrir sér.

Til að setja raforkunotkunina í samhengi við hversdaginn hefur Hannah Ritchie, gagnavísindamaður við Oxford-háskóla, tekið saman nokkur einföld dæmi. Hún byggir á niðurstöðum Google, þar sem miðgildi raforkunotkunar textafyrirspurna til Gemini í maí 2025 var 0,24 wattstundir. Samkvæmt samanburði hennar er það álíka mikið rafmagn og örbylgjuofn notar á einni sekúndu, sjónvarp á níu sekúndum eða fartölva á sautján sekúndum. 1421

Örbylgjuofn

1 sekúnda

Sjónvarp

9 sekúndur

Fartölva

17 sekúndur

Nálgun samkvæmt samanburði Hannah Ritchie 21, byggð á mælingu Google á Gemini. Miðgildi textafyrirspurnar til Gemini er 0,24 Wh. Samanburður á raforkunotkun, ekki heildarumhverfisáhrifum.

Þetta eru nálganir sem hjálpa okkur að sjá stærðargráðuna. Notkun heimilistækja er þó mismunandi og ein gervigreindarfyrirspurn er ekki föst stærð heldur – raforkunotkunin fer meðal annars eftir líkaninu, lengd samtalsins og verkefninu sjálfu. Samanburðurinn nær heldur ekki yfir allan vinnsluferil gervigreindarinnar, svo sem þjálfun líkansins og framleiðslu vélbúnaðar.

Sem dæmi getur myndbandsgerð með gervigreind verið mun orkufrekari en einfalt textaspjall. Í prófun á myndbandslíkaninu CogVideoX var áætluð raforkunotkun við gerð fimm sekúndna myndbands sambærileg við að hafa örbylgjuofn í gangi í rúma klukkustund. 25

Ef við setjum þetta í samhengi við streymisveitu eins og Netflix, þá jafngildir ein textafyrirspurn til ChatGPT um fimm til tíu sekúndum af Netflix-áhorfi. 35

Nýjustu svokölluðu „rökhugsunarlíkönin“, sem eru líkön sem vinna úr löngum fyrirspurnum og skila ítarlegum svörum, geta notað yfir 65 sinnum meira rafmagn en sparneytnustu líkönin á einfaldri textafyrirspurn. 26

Agentar

Notkun agenta, mállíkön sem geta framkvæmt verkefni fyrir hönd notenda, getur verið mun orkufrekari en einfalt spjall. Loftslagsfræðingurinn Zeke Hausfather áætlaði að eigin stórnotkun á Claude Code næmi að meðaltali um þremur kílóvattstundum á dag sem er meira rafmagn en tveir ísskápar nota á sólarhring, samkvæmt samanburði hans. 27

Umfang verkefnisins skiptir því miklu máli. Ein fyrirspurn kallar á svipaða orku og önnur tækni sem við notum dags daglega, en orkuþörfin vex með flækjustigi verkefnisins, eins og dæmið um agentinn sýnir, og notendur eru í auknum mæli að láta gervigreind leysa flóknari verkefni. Spurningin sem situr eftir er hvort eðli þessarar tækni sé að verða meira umlykjandi en önnur, þannig að áhrifin komi fram í umfangi notkunarinnar frekar en í hverri fyrirspurn. Á móti koma framfarirnar sem tæknin getur boðið upp á á sviði umhverfismála sjálfra. Gervigreind er þannig hvort tveggja í senn, ný álagsuppspretta og mögulegt verkfæri gegn vandanum.

Umhverfisáhrifin ráðast líka af því hvar vinnslan fer fram, hvernig rafmagnið er framleitt og hvernig gagnaverið er kælt. Þar koma aðstæður á Íslandi sérstaklega við sögu.

Sérstaða Íslands

Ef gagnaverin stæðu á Íslandi gæti dæmið litið öðruvísi út. Rafmagnið hér kemur nær eingöngu úr vatnsafli og jarðhita, sem dregur úr kolefnisspori rekstrarins miðað við staði þar sem raforkan kemur að miklu leyti úr jarðefnaeldsneyti. Íslensk gagnaver geta auk þess nýtt kalt útiloft til kælingar og þannig dregið úr þörf fyrir kælingu með uppgufun vatns; það er sú lausn sem stærstu rekstraraðilarnir hér, Verne, atNorth og Borealis, byggja á. 2930 Vatnsþörfin fer þó eftir útfærslu kælikerfisins, þéttustu gervigreindarkubbarnir kalla til dæmis á vökvakælingu, 30 og endurnýjanleg raforka þýðir ekki að vatnsspor raforkuframleiðslunnar hverfi. 19

Aðgengi að ferskvatni er líka hagstætt hér á landi; Ísland á mest af endurnýjanlegu ferskvatni á hvern íbúa allra landa. 31 Samkvæmt umfjöllun Veitna nota íbúar höfuðborgarsvæðisins um 140 lítra af köldu vatni á dag hver. Þar kemur einnig fram að heildarvatnsnotkun í Reykjavík hafi ekki aukist á fimmtán ára tímabili þrátt fyrir fólksfjölgun. 28 Ferskvatn er þó að sjálfsögðu ekki ótakmörkuð auðlind og þegar talað er um vatnsnotkun gagnavera er rétt að skoða hana í samhengi við aðra notkun samfélagsins og langtímaþol auðlindanna. 34 Heita vatnið, sem víða erlendis þarf að hita með rafmagni eða gasi, kemur hér að um 90% úr jarðhita. 32

Hér liggur tækifæri fyrir Ísland: Endurnýjanleg raforka og kalt loftslag geta stuðlað að lágu kolefnisspori rekstrar og minni þörf fyrir kælivatn. Tækifærið kallar hins vegar á stærra samtal.

Framboð orku hér á Íslandi er takmarkað rétt eins og annars staðar og frekari uppbygging gagnavera krefst meiri raforku sem síðan þarf að velja að setja í gagnaverin frekar en í annan iðnað. Hverjir fá orkuna og í hvað hún er notuð er því ein af lykilspurningunum í umræðunni um gagnaver á Íslandi. Höfundur þessa greinar á inni samtal við Jóhann Pál Jóhannsson, Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra varðandi þetta málefni og það verður hluti af framtíðarumfjöllun skýrslunnar um gagnaver.

„Þegar um er að ræða innviði sem nota mikið magn af orku, vatni, landi og öðrum hráefnum teljum við eðlilegt að samfélagið hafi aðgang að upplýsingum um heildaráhrifin og að það sé til heildræn lagaumgjörð um málefnið áður en ákvarðanir um frekari uppbyggingu eru teknar.“

Laura Sólveig Lefort ScheeferForseti Ungra umhverfissinna

Hvað skiptir þá máli?

Fyrir einstakling sem spyr nokkra spurninga á dag er notkun gervigreindar lítill liður í umhverfisfótspori sem ræðst miklu frekar af ferðalögum, mataræði og húsnæði. 33 Hannah Ritchie reiknaði að tíu fyrirspurnir á dag, hvern einasta dag ársins, sé í mesta lagi ellefu kíló af koltvísýringi. 36 Til samanburðar er ein flugferð fram og til baka yfir Atlantshafið um 1.600 kíló. 37

Höfum samt í huga að litlar tölur margfaldaðar með milljörðum fyrirspurna á dag verða stórar, og þær lenda ekki jafnt á öllum. Þær lenda á þeim sem búa við hliðina á gagnaverinu, deila vatnsbólinu með því og fá hækkaðan rafmagnsreikning þegar orkufyrirtækið þarf að byggja nýtt gagnaver.

Umræðan ætti því ekki síst að snúa að því hvar gagnaverin eru byggð, á hvaða orku þau ganga, hver ber kostnaðinn og hver fær ávinninginn.

Íslensk gagnaver eru enn smá í samanburði við þau bandarísku sem greinin hófst á. Ef byggja á fleiri gagnaver hér á landi væri ráðlagt að hafa skýra samfélagslega sýn frá upphafi. Þannig væri hægt að tryggja að hluti reikniaflsins myndi standa íslensku samfélagi til boða, ekki síst rannsóknum og nýsköpun, og skilyrði um fjárfestingu í nærsamfélaginu sem leggur til orkuna og landið gætu verið sett. Ráðlagt væri að skilgreina skýrt, heildrænt regluverk frá upphafi svo við endum ekki þar sem Bandaríkin eru nú, með gagnaver sem risu í leynd og andstöðu frá íbúum sem búa við ólíðandi skilyrði.

Það fer ekki milli mála að við gætum átt orkuna sem þessi iðnaður sækist eftir og kalt loft sem sparar vatnið. Hvað það þýðir, tækifærin og ókostirnir, er efni næstu greinar.

Heimildaskrá

  1. https://heatmap.news/politics/americans-oppose-data-centers-poll (opnast í nýjum flipa)
  2. https://nebraskaexaminer.com/2026/09/22/data-center-opposition-is-growing-with-nebraskans-crossing-party-lines-in-protest/ (opnast í nýjum flipa)
  3. https://spyglass.org/the-stargate-data-center-layer-cake/ (opnast í nýjum flipa)
  4. https://www.anthropic.com/news/anthropic-invests-50-billion-in-american-ai-infrastructure (opnast í nýjum flipa)
  5. https://www.kqed.org/news/12097457/the-data-center-backlash-is-here-and-big-tech-is-spending-big-to-combat-it (opnast í nýjum flipa)
  6. https://www.datacenterwatch.org/report (opnast í nýjum flipa)
  7. https://www.npr.org/2026/09/21/nx-s1-5927288/data-center-election-voters-ai (opnast í nýjum flipa)
  8. https://news.gallup.com/poll/709772/americans-oppose-data-centers-area.aspx (opnast í nýjum flipa)
  9. https://www.bloomberg.com/news/articles/2026-09-21/new-data-centers-worth-68-billion-disrupted-in-us-data-show (opnast í nýjum flipa)
  10. https://www.exchange-rates.org/converter/isk-usd (opnast í nýjum flipa)
  11. https://epic.uchicago.edu/news/concern-about-ais-environmental-impact-has-risen-over-the-past-year-especially-among-young-adults (opnast í nýjum flipa)
  12. https://www.surveymonkey.com/curiosity/cnbc-ai-work-survey-may-2026/ (opnast í nýjum flipa)
  13. https://mistral.ai/news/our-contribution-to-a-global-environmental-standard-for-ai (opnast í nýjum flipa)
  14. https://cloud.google.com/blog/products/infrastructure/measuring-the-environmental-impact-of-ai-inference (opnast í nýjum flipa)
  15. https://andymasley.com/visuals/water/ (opnast í nýjum flipa)
  16. https://openai.com/index/introducing-data-residency-in-europe/ (opnast í nýjum flipa)
  17. https://simonwillison.net/tags/ai-energy-usage/ (opnast í nýjum flipa)
  18. https://www.seangoedecke.com/water-impact-of-ai/ (opnast í nýjum flipa)
  19. https://arxiv.org/html/2304.03271v5 (opnast í nýjum flipa)
  20. https://www.datacenterdynamics.com/en/news/sam-altman-chatgpt-queries-consume-034-watt-hours-of-electricity-and-0000085-gallons-of-water/ (opnast í nýjum flipa)
  21. https://hannahritchie.substack.com/p/ai-footprint-august-2025 (opnast í nýjum flipa)
  22. https://hannahritchie.github.io/energy-use-comparisons/ (opnast í nýjum flipa)
  23. https://ff7.is/2024/02/i-hvad-fer-allt-rafmagnid/ (opnast í nýjum flipa)
  24. https://www.coolblue.nl/en/advice/energy-consumption-dishwasher.html (opnast í nýjum flipa)
  25. https://www.technologyreview.com/2025/05/20/1116327/ai-energy-usage-climate-footprint-big-tech/ (opnast í nýjum flipa)
  26. https://arxiv.org/abs/2505.09598 (opnast í nýjum flipa)
  27. https://www.theclimatebrink.com/p/the-real-energy-use-of-agentic-ai (opnast í nýjum flipa)
  28. https://www.veitur.is/en/frettir/verndum-vatnid-okkar (opnast í nýjum flipa)
  29. https://www.datacenterknowledge.com/cooling/free-cooling-in-iceland-a-closer-look-at-the-verne-global-data-center (opnast í nýjum flipa)
  30. https://www.datacenterdynamics.com/en/analysis/icelands-ai-moment/ (opnast í nýjum flipa)
  31. https://data.worldbank.org/indicator/ER.H2O.INTR.PC?locations=IS (opnast í nýjum flipa)
  32. https://orkustofnun.is/natturuaudlindir/hitaveita (opnast í nýjum flipa)
  33. https://www.technologyreview.com/2025/11/06/1127579/ai-footprint/ (opnast í nýjum flipa)
  34. Ungir umhverfissinnar: Afstaða Ungra umhverfissinna til umhverfisáhrifa gervigreindar. Bréf dags. 24. september 2026, undirritað af Lauru Sólveigu Lefort Scheefer, forseta, fyrir hönd stjórnar 2026–2027. (opnast í nýjum flipa)
  35. https://simonwillison.net/2025/Nov/29/chatgpt-netflix/ (opnast í nýjum flipa)
  36. https://hannahritchie.substack.com/p/carbon-footprint-chatgpt (opnast í nýjum flipa)
  37. https://iopscience.iop.org/article/10.1088/1748-9326/aa7541 (opnast í nýjum flipa)

Flokkur

Umhverfis- og orkumál Opna flokk